6. apríl 2005

Mokveiði í Tungulæk

Frábær veiði var í Tungulæk frá hádegi sunnudags og allan mánudag er skotist var í Tungulæk. Áður hafði Þórarinn Kristinsson landeigandi og fl. opnað lækinn með rúmlega 80 fiskum veiddum. Er veiði hófst gekk á með éljum og þegar veðrið var sem verst voru tökur þetta kvöld sem bestar. Setti undirritaður í 3 stórfiska fljótlega, fyrst 81 cm og 86 cm fiska í Faxa áður en sá stærsti kom á land rétt neðan við Opið, við svokallaða Frystikistu sem er nafn á veiðistað þar. Var það 88 cm hængur sem tók líkt og aðrir fiskar hjá mér þennan eftirmiðdag, Black Ghost keilu straumflugu.

Sá stóri nýkomin á land, 88 cm sjóbirtingur og var sleppt aftur örstuttu síðar.
Súddi staðarhaldari og leiðsögumaður við Breiðdalsá með einn góðan geldfisk.

Samtals veiddust 84 fiskar hjá okkur, þar af voru nokkrar mjög fallegar bleikjur úr Holunni.

Hann er á í Holunni, frábært veður um miðjan daginn, hiti og sól, en samt var fiskur í tökustuði.
... Og komin á land, boltableikja hjá veiðimanninum Óðinn Helga Jónssyni. .

Lítið hefur verið reynt í Minnivallalæk síðan á laugardagskvöld, en þeir sem opnuðu hann náðu 7 fiskum við slæmar aðstæður. Verður byrjað að veiða þar aftur á föstudag, vonandi slotar kuldahretinu nú undir helgi. 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is