Veiðifréttir

8.ágúst 2005

Okkar tvær helstu laxveiðiár, Hrútafjarðará og Breiðdalsá virðast haldast í hendur í fjölda laxa með um 160 laxa komna á land í hvorri á. Nokkrir stórir hafa verið að veiðast undanfarna daga, þar á meðal einn rúm 8 kg í Hrútu og fleirri stórir þar 5-7 kg hafa einnig náðst á land. Síðasta holl var þar með rúmlega 30 laxa þrátt fyrir minnkandi vatn.

Breiðdalsá gaf 11 laxa í gær, þar af þrjá 5-6 kg og ágæt veiði þrátt fyrir lítið vatn, en eitthvað er hann að byrja að rigna sem gerði ánni gott. Vil benda á að ein stöng er laus 16-19 ágúst, fyrstur kemur fyrstur fær!

Það reytist upp lax bæði í Laxá í Nesjum og Selá í Álftafirði þrátt fyrir lítið vatn, en það breytist kanski nú með rigningum. Sést hefur töluvert af laxi í Ármótahyl neðst í Laxá sem bíður eftir að komast inn. Nokkrir stangir eru þar lausar á stangli í ágúst!

Breiğdalsá
Lax dregin á land í Krókastreng í Breiðdalsá nýlega. Veiðimaður er Pétur Brynjólfsson frá Akureyri, sem veitt hefur þá marga í ánni.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is