GRENLÆKUR Í MIKILLI UPPSVEIFLU

9.júní 2005

Veiði í Grenlæk var afar góð í fyrra og það sem meira var um vert, þá var hún mun betri heldur en 2003 og þetta hefur allt verið á uppleið síðustu árin. Veiðin hefur áður verið betri, en ef skýrslur eru skoðaðar þá má sjá ákveðnar sveiflur sem skrifast að mestu á Móður náttúru sjálfa. Ef eitthvað er að marka þessar sveiflur þá verður veiðin enn betri í ár og orð fiskifræðinga í vor um að búast megi við enn frekari uppsveiflu í sjóbirtings- og bleikjuveiði, gera ekkert nema staðfesta þá von og trú okkar.

Síðasta ár veiddust í Grenlæk öllum 1.700 urriðar, en ekki er greint á milli sjóbirtings og staðbundins urriða í þeim tölum. Stórtækustu svæðin eru Fitjaflóðið og Seglbúðasvæðið sem við seljum veiðileyfin í. Til samanburðar var heildarveiði 2003 1.189 urriðar. Meðalþunginn í fyrra var 1,8 kg, eða um það bil 3,5 pund. Sveiflurnar sýna að fram að sumrinu 1994 er stigvaxandi veiði sem toppar það ár í 3.311 urriðum og toppar síðan toppinn árið eftir, 1995 með 3.638 urriðum.

 
Síðan dalar, en er vel yfir 2.000 1996 og 1997. 2001 er kominn botn í veiðina, þá veiddust 864 og ekki er ólíklegt að stóri þurrkurinn í ánni, er Vegagerðin lokaði á Skaftárvatn inn á hraunið um árið hafi spilað þar rullu. En síðan er búin að vera uppsveifla eins og að framan má sjá og spurning hvað verður í ár. Urriðaveiðin gæti sem hægast farið yfir 2.000 fiska ef fram heldur sem horfir. Við sjáum hvað setur og tíminn leiðir það að sjálfsögðu í ljós, en af framangreindu þá eru spár okkar og vonir ekki út í bláinn.

Það sama er að segja um bleikjuveiðina. Hún hefur alltaf verið minni en urriðaveiðin í tölum talið. Það er mismikið af henni frá ári til árs og hún er auk þess mun dyntóttari fiskur að eiga við heldur en urriðinn. En það eru sveiflur í bleikjuveiðinni líka og samkvæmt töflum VMSt þá fylgja þær bærilega urriðanum. T.d. var mesta bleikjuveiðin í Grenlæk aftur til ársins 1987 einmitt árið 1995 er urriðaveiðin toppaði, en þá veiddust alls 403 bleikjur. Í fyrra voru þær 267 á móti 209 sumarið 2003. Frá árinu 2001 hefur bleikjuveiðin verið í sókn og verið yfir 200 fiskum. Þetta er flottur stofn, meðalþunginn í fyrra slétt 1,5 kg, eða 3 pund og margar 5-6 punda sáust í afla veiðimanna.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is