Veiðisumarið 2004 var frábært í okkar ám
og var um metveiði að ræða í flestum
laxveiðiám okkar, eða í Hrútafjarðará,
Breiðdalsá og Laxá í Nesjum þar
sem veiðin margfaldaðist í þeim öllum
frá fyrra ári. Er það engin
tilviljun og má þakka að töluverðu
leyti öflugu ræktunarátaki okkar
undanfarin ár sem er að skila þessarri
miklu veiðiaukningu milli ára. Stórauknar
seiðasleppingar undanfarin ár hafa ekki
verið settar út í verðlagið nema
að litlu leyti fyrr en þær hafa sannað sig. Því eru
töluverðar hækkanir óhjákvæmilega
fyrir sumarið 2005 í þessum ám
til að hægt sé að standa nú undir
kostnaði við þessar sleppingar. Önnur
veiðisvæði hækka óverulega
milli ára og að mestu í tengslum
við verðlag eða rúmlega það,
nema Hvolsá og Staðarhólsá hækkar í fyrsta
sinn í sex ár vegna endurbóta á veiðihúsinu þar.
Fyrsta sumarið okkar í Nes- og Árnesveiðum í Laxá í Aðaldal
var ánægjulegt. Þarf að fara
nokkur ár aftur í tímann til
að finna þar eins mikla veiði og árið 2004
eða 375 laxar á land þar. Að vanda
veiddist mjög vel af stórlaxi og er hlutfall
hans óvíða meira á landinu
en á þessu svæði. Við munum áfram
bjóða stangir á bilinu 1-17 júlí og
frá 28 ágúst til 18 september á þessu
veiðisvæði fyrir næsta sumar.
Nýtt! Eitt best geymda leyndarmálið í laxveiði
er Selá í Álftafirði. Þar
var veidd í fyrsta sinn skipulega sl. sumar
og fungust 108 laxar en þó var veiði
eingöngu stunduð um helgar. Er þar
um að ræða náttúrulegan
stofn árinnar, en einnig er stefnt að því að hefja
seiðasleppingar þar næstu árin.
Strengir munu nú hafa Selá í umboðssölu á hóflegu
verði, líklega ein bestu kaupin í laxveiði á landinu þar í boði.
Í fyrsta sinn í sex ár er verðhækkun í Hvolsá og
Staðarhólsá, enda hafa talsverðar
endurbætur verið gerðar á veiðihúsinu þar.
Góð aukning var á laxveiði
eða tæplega 80 laxar og sjóbleikjuveiðin
stendur alltaf fyrir sínu.
Seglbúðasvæðið í Grenlæk
nánast tvöfaldaði veiði sína á milli ára
eða í rúmlega 1.000 fiska. Aukning
var að mestu í sjóbirting og greinilegt
að stofninn er í mikilli uppsveiflu á svæðinu.
Minnivallalækur er alltaf vinsæll enda
urriðinn þar óvenju stórvaxinn,
og frábært nýtt veiðihús
alveg á árbakkanum gerir þetta
að einstakri perlu.
Póstlisti: Sendið okkur
netfang og heimilisfang til að komast á póstlista
okkar!
|