Minnivallalækur endaði í 19 fiskum

1.apríl 2006

Minnivallalękur

Starri Friðriksson með einn vænan úr Stöðvarhyl nú síðdegis.

Besti opnunardagur í langan tíma var í Minnivallalæk í dag. Að meðaltali var einungis veitt með tveim stöngum í samtals fjóra tíma að sögn Aðalsteins sem var með opnunina. Fengust 19 fiskar, allir frekar vænir eða frá 2 kg og upp í 5kg! Veitt var með sökklínum og straumflugum, enda mjög kalt og fiskur liggur við botn. Einungis var farið á tvo staði í ánni, Húsabreiðu og Stöðvarhyl.Öllum fiski var sleppt nema tveim er blæddi úr.



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is