22 bleikjur opnunardaginn!

1.maí 2006

Breiğdalsá

Leitað að bleikju við Ytri-Grjóttanga í morgun. Var kalt á ósasvæðinu þennan fyrsta dag.

Hann var kaldur og vindasamur fyrsti dagurinn á silungasvæði Breiðdalsár, en menn létu það þó ekki aftra sér að sögn Súdda í morgun. Tók dágóðan tíma að finna bleikjuna fyrst, vatn var aðeins litað eftir rigningar en á vissum bletti fundu menn hana loks í nágrenni við þjóðvegsbrúnna og þar náðist strax ágæt veiði, eða um 10 stk. Var hún frekar smá en ein og ein góð stærð upp í 2 pund.

Menn hættu snemma eða um miðjan daginn flestir, enda kalt að standa að veiðum mikið lengur, en þá höfðu 22 bleikjur tekið agn veiðimanna, og töluvert vart á fluguna svo eitthvað er af henni. Lítið var hún að vaka, enda skilyrði ekki beint góð til þess að sýna sig á yfirborðinu.




Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is