 |
| Halldór Óli með hrygnuna góðu, hún fór beint í klakkistu. |
|
Í gær hófst veiði í laxveiðiám okkar. Í Breiðdal hafði rignt mikið daginn áður og var mjög erfitt að finna lax í því gífurlega vatni sem var í ánni.
Þó hitti Halldór Óli Halldórsson á hann í Gljúfrahyl alveg við bakkann við bílastæðið norðanmegin, en þar kom fiskur 2-3 eftir flugunni Zocker keilu einkrækju númer 6 áður en hann tók. Var það 5.5 kg hrygna og 81 cm, ekki lúsug en auðsjáanlega nýgenginn. Var hún sett í klakkistu líkt og margir aðrir stórlaxar sem veiðast í Breiðdalsá. Vart var við laxa ofar í Glúfrahyl og í Ármótum Breiðdalsár og Tinnu, en erfitt að eiga við vegna mikils vatns. Nú eru aðstæður að batna og ætti þá að taka við sér veiðin næstu daga. En lítið sem ekkert er bókað þá, svo enn eru laus leyfi með ágætri von.
Hrútafjarðará gaf tvo laxa fyrsta daginn, og báðir fengust á efstu veiðistöðum, Réttarfossi og Réttarstreng, svo hann er komin upp alla á.
Góðar aðstæður, gott vatn, svo lítur vel út þar.
Næstu daga verður byrjað að kíkja í Laxá í Nesjum og Selá í Álftafirði, en vel hefur rignt á þeim slóðum og ætti lax að fara að sjást þar.
|