Sjö laxar í opnun Breiðdalsár!

3.júlí 2006

Sjö laxar veiddust í Breiðdalsá opnunardagana 1-3 júlí. Glæsileg byrjun sem lofar góðu með framhaldið. Voru það nánast allt hrygnur um 5-6 kg sem flestar fóru í næstu klakkistu. Gunnlaugshlaup, Skammadalsbreiða og Gljúfrahylur gáfu þessa laxa, nema einn smálax sem veiddist á silungasvæðinu við ósinn við Brú, en hann tók þar Black Ghost flugu.

Reyndar virtist vera töluverður lax á ferð þar niðurfrá því silungsveiðimenn settu í tvo aðra laxa ofar við Grjóttangana sem þeir misstu. Annar þeirra datt af fyrir klaufaskap þegar reynt var að koma laxinum í lítinn silungsháf, en við þær aðfarir misstu þeir laxinn. Sást líka til stórlax rétt ofar eða í Lambabakkahyl. Er óvenjulegt að á silungasvæðinu sé vart við svona mikinn lax, en með stóraukinni fiskrækt er ekki ólíklegt að þar muni veiðast töluvert af laxi. Líklega verða það þá ódýrustu "laxveiðileyfin á markaðinum, en stöngin kostar einungis kr. 6.000, og töluvert laust eins og er.

Á vef okkar er til gamans komið stutt myndband af viðureign minni við einn 5 kg lax sem tók Black and Blue Conehead túpu á sunnudaginn, í miklu vatni í Gunnlaugshlaupum. Var hrygnunni sleppt aftur að lokinni myndatöku.

Góða skemmtun.



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is