Þann 31. ágúst hófst veiði á spón og maðk í Breiðdalsá og var þar um að ræða hóp spænskra veiðimanna. Fyrsta daginn komu 49 laxar sem er metveiði í ánni á einum degi, síðan fengust 29 laxar og í gær 27 laxar, svo yfir 100 laxar hafa þá veiðst á fyrstu þrem dögunum. Megnið hefur veiðst á á spón og hefur þeim flestum verið sleppt aftur í ánna. Fiskur er komin víða á vatnasvæðið og er enn að ganga svo það lítur vel út með framhaldið. Það er laus ein og ein stöng á stangli í nokkrum hollum í september, í hollunum 8-11/9, 11-14/9, 17-20/9, 26-29/9. Áhugasamir hafi samband sem fyrst, enda hefur september verið drjúgur í Breiðdalsá undanfarin ár.
Nú eru komnir um 570 laxar á land sem er svipað og í fyrra en þá endaði áin í rúmlega 800 löxum þrátt fyrir erfið skilyrði í september, svo búast má við enn hærri veiði nú í mánuðinum ef aðstæður verða í lagi.
Það hefur verið góður gangur í Selá í Álftafirði undanfarna daga eins og eftirfarandi póstur gefur upplýsingar um:
“Sæll Þröstur.
Mig langar að senda þér línu en ég ásamt fjölskyldu vorum að koma úr Selá í Álftarfirði eftir frábæran tíma þar. Þegar við komum var búið að vera ansi þurrt og áin frekar vatnslítil, en Birkir einn af leigutökum árinnar tók á móti okkur með rigningu, sem var bara hið besta mál. Þá vorum við líka heppin því við fengum góðan tíma með honum og sýndi hann okkur flesta veiðistaði í ánni og var það ómetanlegt fyrir okkur og skal hann hafa þakkir fyrir.
Er áin sjálf og umhverfi hennar einstaklega fallegt og var mjög gaman að veiða þarna, sérstaklega þar sem við tókum tvo fiska á land á ómerktum veiðistað, en hann fékk veiðistaðar-númmer 16 og hálft og tókum við einnig okkur það bessaleyfi að skýra hann "Steinahyl".
Það er nokkuð ljóst að töluvert magn er af fiski í ánni og var hægt að sjá "torfur" á veiðistað 3, 11, 16 1/2, og sér í lagi á 17, en einnig var fiskur í 5, 7, 13, og eflaust á fleiri stöðum sem ég sá ekki.
Ég vona að þú getir miðlað þessum upplýsingum eitthvað og besta mál ef einhver getur gert sér þetta að góðu, en undirritaður tók 9 Laxa og eina Bleikju með sínu fólki heim úr þessari ferð, allir sælir og glaðir og stefna að því að bóka næsta ár sem fyrst.
KK
Orri Sverrisson & fjölskylda.”
Nokkrir dagar eru ennþá lausir í Selá, næstu þrír dagar til 5/9, og svo eftir 20/9 töluvert.
svæðinu. |