Verðlækkun í Laxá í Nesjum!

5.janúar 2006

Nú eru komin öll verð fyrir Laxá í Nesjum á vefinn og er lækkunin almennt um 25-30%! Einnig verður leyfð maðkur allt tímabilið en undanfarin ár hefur eingöngu fluga verið leyfð í ágústmánuði. Seiðasleppingar heppnuðust vel og tel ég að þessi skemmtilega tveggja stanga á eigi eftir að gefa yfir 200 laxa næsta sumar. Miðað við þá veiði væri  um kjarakaup að ræða fyrir veiðimenn!

Gengið hefur vel að bóka í okkar ýmsu veiðiár og mælt er með að áhugasamir hafi samband sem fyrst til að tryggja sér veiðileyfi fyrir sumarið 2006!

Laxá í Nesjum
Veiðikona með 75 cm lax & 61 cm sjóbirting úr Teitshlaupi í Laxá í Nesjum sumarið 2005


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is