Nýr samningur um leigu á Hrútafjarðará undirritaður!

5.maí 2006

Hrśtafjaršarį

Skrifað undir nýjan samning um Hrútafjarðará við stjórn Veiðifélags Hrútafjarðarár. Frá vinstri er Kristinn R. Guðmundsson frá Staðarskála, Gunnar Sæmundsson frá Hrútatungu og Árn J. Eyþórsson formaður frá Bálkastöðum. Myndin er tekin í stofu veiðihússins.

Nú hefur verið gengið frá nýjum samningi Veiðiþjónustunnar Strengir við Veiðifélag Hrútafjarðarár til ársins 2010. Hefur samstarfið gengið ákaflega vel og hafa allar áætlanir varðandi fiskrækt árinnar og veiði gengið fullkomlega eftir, og er Hrúta nú með eina af hæstu meðalveiði á stöng á landinu ef tekið er mið af laxveiðiám sem eingöngu leyfa fluguveiði.
Stefnt er að auka seiðasleppingar en frekar á vegum Strengja og jafnframt mun Veiðifélagið stækka og endurbæta veiðihúsið svo það verði orðið fyrsta flokks fyrir sumarið 2007. Eftir er að útfæra það nákvæmlega, en fjölga mun svefnherbergjum, baðherbergjum, vöðluherbergi sett upp, stofa stækkuð og stór verönd með heitum potti eru helstu breytingar sem stefnt er að gera.

Ekki verður því komist hjá hækkun veiðileyfa fyrir árið 2007 í framhaldi af þessum samningi, en þeim verður þó stillt í hóf og verða mun lærri en ýmsar aðrar hækkanir sem sést hafa á laxveiðimarkaðnum nýlega.

Hrútafjarðará er uppseld fyrir sumarið 2006, en ennþá eru góð laxveiðileyfi laus í öðrum veiðiám okkar eins og sjá má á vef okkar.



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is