Laxveiðin hefur heldur betur tekið kipp síðustu daganna, sérstaklega í Breiðdalsá. Bara morgunveiðin gaf þar 14 laxa og veiðimenn settu í marga aðra sem sluppu. Góðar göngur af bæði smálaxi og stórlaxi hafa komið í ánna og eitt og eitt tröll innanum. T.d. var sett í eitt slíkt á Skammadalsbreiðu og eftir klst langa viðureign og 600 metrum neðar losnaði úr flugunni. Stefnir í enn eitt metsumarið og líklegt að 1000 laxa múrinn verði tekinn í ár. Komnir eru um 240 laxar sem er mun meira en á sama tíma í fyrra.
PS: Vegna forfalla er laust á prime time 1 stöng 15-19 ágúst í Breiðdalsá, pakki með fæði, gistingu og leiðsögumanni. Spyrjið um nánari upplýsingar.
Í Laxá í Nesjum tók veiði við sér loksins er fór að rigna um mánaðarmótin og hefur verið reytingur síðan. En þar er líka eitt tröll sem menn áætla ekki undir 10 kg. sem hugsanlega veiðist einn daginn í þessarri litlu á.
Sama sagan í Selá í Álftafirði, komin fiskur líka, en sést mest neðarlega í ánni á nýjum veiðistað, þar lágu 25-30 laxar er að var gáð og lítur vel út með vatnsbúskap þar núna. Ennþá nokkrar stangir lausar í bæði Laxá og Selá í sumar.
|