Góðu laxveiðisumri lokið í Breiðdalsá

6.október 2006

Það var frábær veiði í Breiðdalsá og sérstaklega var haustið gott, enda með eindæmum hlýr september og aðstæður góðar. Lax var enn að ganga allt til loka 30. september og síðustu tvær vikurnar voru með þeim betri í sumar.
Lokatalan var 937 laxar sem er um 15% aukning frá fyrra ári. Veiðin var vel dreifð undanfarnar vikur og má segja að lax hafi verið um allt vatnasvæðið.

Seiðasleppingar voru auknar í vor og kæmi ekki á óvart ef áin færi yfir 1.000 laxa múrinn á næsta ári. Það hefur verið jafn og örruggur stígandi í veiði undanfarinn ár og stefnt er að því að svo verði áfram. Áhugasamir hafi samband sem fyrst.

Sjá video


Breiðdalsá

Hinn þekkti veiðiljósmyndari Jón Skelfir með einn af síðustu löxunum lokadaginn í Breiðdalsá. Missti hann niður flúðir neðan Heyhólshyls og stóð "Skelfirinn" á öndinni í eltingarleiknum. En sjáum hér á video
upphafsmínutu viðuregnar og þegar hún var afstaðinn.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is