7 kg urriði úr Minnivallalæk!

12.júní 2006

Minnivallalękur
Þessi var stærstur árið 2005, 6 kg, en nú þegar er einn komin stærri þetta árið!

Það hefur gengið upp og niður í Minnivallalæk, veiðimenn sjá oft töluvert af fiski þó hann taki nú ekki allt of vel. Þeir sem gjörþekkja lækinn gera það þó yfirleitt alltaf gott, eins og t.d. Jóhannes Sigmarsson sem veitt hefur þarna í 25 ár og fengið þá marga stóra. Hann og félagar voru þarna 6-8 júní og gerðu góðan túr, með 15 fiska og þar af þann stærst til þessa í ár. Var það neðarlega í ánni við Hólmakvíslar eða Dráttarhólshyl að Jóhannes taldi sig sjá fisk á broti á nýjum stað og kastaði á hann lítilli dökkri flugu. Hann tók og það voru þessi dj...læti í honum áður en hann náði honum á land að sögn Jóhannesar. Mældist hann 82 cm og ca. 7 kg að þyngd!

Þurrflugan er að gefa stöðugt betur, eitt hollið tók nokkra fiska á sem eingöngu tóku Black Gnat þurrflugur númer 20 eða svipaðar dökkar útgáfur. Annars hefur Black Ghost straumfluga gefið líka, sérstaklega á flotlínu og á hröðu strippi.

Reytingur er í Breiðdalnum að hafa af sjóbleikju, en ekki mörg stór skot eins og undanfarin ár. Einn lax sást við ósa árinnar nýlega svo eitthvað ætti að vera komið í ánna af laxi þegar opnun verður 1. júlí á laxasvæðum.

Nú fer hver að vera síðastur að tryggja sér góð leyfi í sumar, sjá stöðu lausra leyfa. Ég fer í frí með fjölskyldunni þann 15 júní í tvær vikur en Halla Karí Hjaltested verður á skrifstofunni, og einnig verður hægt að ná símasamband við mig ef nauðsyn krefur.



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is