 |
Frá sjóbleikjusvæði Breiðdalsár.
|
 |
| Þrátt fyrir mikla veðurblíðu og ekki ský á himni var sett í fisk, hér er hann á í Stöðvarhyl í dag! |
|
Eftir opnunardaginn 1. maí var lítið um að vera um tíma á silungasvæði Breiðdalsár, bæði mikið vatn til að byrja með og bara lítið vart við bleikjuna. En hún er óútreiknanleg og allt í einu var hún komin þann 11. maí er Jón Sigurðsson fluguhnýttari hitti á hana við Ytri-Grjóttanga. Setti hann í yfir 30 bleikjur á stuttum tíma, en tökurnar voru grannar og hann náði einungis að landa 8 stk. Var það allt á nýja flugu sem hann kallar Snædís, sem aldeilis er þá búin að sanna sig.
Hollið sem tók svo við var með um 70 bleikjur svo allt er komið í gang eins og það á að vera þarna fyrir austan! Reyndar er staðbundni urriðinn ekki að veiðast enn af miklum mæli, en þó koma alltaf nokkrir á land öðru hverju, sérstaklega í Skipakíl.
Allt uppselt í maí, og aðeins örfáir dagar lausir í júní, svo enn hægt að komast í alvöru sjóbleikjuveiði, sem virðist almennt vera á undanhaldi víða annarsstaðar á landinu.
Minnivallalækur hefur verið í rólegri kantinum undanfarna daga, fiskur tekur illa og er mjög styggur í sólinni, og einnig er mjög kalt á morgnanna og kvöldin. Helst fer hann á hreyfingu um miðjan dag er hlýjast er.
Nú er nýuppfærður vefur okkar með lausum leyfum. Meðal annars vil benda á að var að losna óvænt holl í Grenlæk 22-24 ágúst, en annars er allt uppseld þar seinnipart sumars og um haustið.
|