Tilraunastangir í Jöklu

16.desember 2006

Miklar breytingar verða á eðli Jökulsár á Brú/Dal, eða Jöklu eins og flestir kalla hana eftir að Kárahnjúkavirkjun verður komin í gagnið. Þessar breytingar eru byrjaðar. Áin mun minnka verulega og jökulleirinn að mestu hverfa. Eftir mun standa á og vatnasvæði sem gæti orðið áhugavert sem stangaveiðisvæði er fram líða stundir. Litlum sögum fer af veiðum á þessum slóðum og almennt hefur Jökla ekki verið talin mikil veiðiá þó svo að dæmi séu um að lax og göngusilungur hafi veiðst nærri og í ósum bergvatnsáa og lækja sem í fljótið renna. Svo og staðbundnir silungar í ármótum ofar, fiskur sem talinn er ganga úr fjallvötnum. Það er mikið verk að vinna að kortleggja möguleika þessa svæðis, hvað þá að rækta það upp í samræmi við uppeldisgetu þess.

Strengir hafa gert samkomulag við Veiðifélag Jöklu um að selja tilraunastangir á svæðið, sem er afar víðfeðmt. Alls verða seldar tólf stangir á dag og verða þær afar ódýrar, eða 2.000 krónur stöngin á dag. Mikilvægt er að veiðireynsla sú sem fæst með þessu skili sér til Strengja og landeigenda til þess að kortleggja megi fyrirkomulag framtíðarinnar, finna veiðistaði og átta sig á öllum aðstæðum. Þarna eru miklir framtíðarmöguleikar.

Strengir munu njóta krafta stangaveiðifélagsins Flúða á Akureyri við uppbyggingu árinnar og hafa viss samstarf með sölu veiðileyfa.

Jöklu Jöklu

Á þessum myndum sést vel hve miklar breytingar hafa orðið á farvegi Jöklu, teknar á sama stað um mitt sumar og svo seint í haust.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is