Veiðin í Breiðdalsá hefur verið frábær í sumar, en sl. daga hefur vatnið lækkað mikið og nánast hitabylgja verið flesta daga. Þó eru komnir 320 laxar á land. Hollin í Selá í Álftafirði og Laxá í Nesjum eru að fá oftast nokkra laxa núna í ágúst og virðist töluverður lax gengin í báðar árnar núna. En gott væri að fá rigningu á austurland sem fyrst því þá tæki veiðin mikinn kipp í þessar ár.
Hrútan er að detta í 200 laxa, verið góð veiði í flestum hollum í ágúst, en júlí var erfiður, bæði lítið vatn og minna af fiski þá en oft áður. Verði vatn í lagi stefnir samt í gott sumar þar miðað við meðalveiði árinnar, sem er tæplega 300 laxar. Seinni hluti ágúst og september getur verið drjúgur í Hrútu.
|
 |
Einn vænn úr Skammadalsbreiðu í Breiðdalsá nýlega. Veiðimaðurinn Keith t.v. fékk þá fleirri stóra með hjálp Júlíusar leiðsögumanns, en þessi var sá stærsti, um 8 kg.
|
|