Mikið vatn í laxveiðiánum

18.september 2006

Það er annaðhvort í ökkla eða eyra í laxveiðiám okkar. Eftir langtíma þurrkatíð hafa himnarnir opnast með tilheyrandi flóðum. Þrátt fyrir hvert stórflóðið á fætur öðru hefur veiðin verið ágæt flesta daga í Breiðdalsá. Þá er hann helst að veiðast þar sem tærar hliðarár koma út í meginánna. Er áin komin í 765 laxa og stefnir í 850-900 laxa ef fram fer sem horfir með veiði til mánaðarmóta er veiði líkur.

Hrútafjarðará hefur tekið við sér við þessar aðstæður og veiðin þar er komin yfir 300 laxa, og veitt til mánaðarmóta svo Hrútan verður þrátt fyrir allt töluvert yfir meðalveiði árinnar sem er um 270 laxar.

Selá í Áltafirði er komin yfir 100 laxa múrinn eftir einstaka slæma byrjun í sumar. Lok ágúst og allur september hefur verið frábær og lax víða um ánna. Laxá í Nesjum fékk loksins vatn sl. viku og veiðin tók kipp þá líka eftir einmuna vatnsleysi í langan tíma. Þar eru um 70 laxar komnir á land.

Það er rétt sem heyrst hefur að eina vikuna gaf Grenlækur Seglbúðasvæðið mjög góða veiði nýlega. Voru það danir sem gjörþekkja lækinn og veiddu mest með uppstreymis aðferðinni með tökuvara. Um 100 sjóbirtingar veiddust þá. Virðist vera töluvert af fiski en mönnum gengur misvel að fá hann til að taka.

Hrútá

Stórlax veiddur í Réttarstreng í Hrútu nýlega, mældist 90 cm langur. Veiðimaðurinn Freyr Frostason setti hann í klakkistu, þökk fyrir það.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is