Það vita fáir sem leið eiga um þjóðveg 1 í Álftafirði fyrir austan að Selá sé náttúruleg laxveiðiá. Hún lætur einstaklega lítið yfir sér á eyrum við þjóveginn, en þegar farið er upp með ánni og inn í dalinn þar rekur mann í rogastans! Einstakt umhverfi og er hver veiðistaðurinn glæsilegri. Og að þarna skuli ávallt hafa verið laxveiði sem ekki hefur farið hátt er sérstakt.
Nú er komin meiri reynsla á ánna undir meira veiðiálagi og hefur verið ákveðið að engin kvóti verði í Selá í Álftafirði árið 2006, enda talið að með fluguveiði eingöngu náist að vernda hrygningarstofn árinnar nægilega svo ekki sé hætta á ofveiði. Verð er ennþá stillt í hóf eða stangardagurinn á bilinu kr. 9.900 til kr. 23.900. Eingöngu tvær stangir leyfðar og eru þær seldar saman. Innifalið gisting í stóru hjólhýsi rétt við ánna, og einnig lítið hús við hliðina fyrir þurrkherbergi og frystigeymslu.
|
 |
Einn af skemmtilegum veiðistöðum Selár. Veiðimaðurinn setti stuttu síðar í maríulaxinn sinn nokkru ofar í ánni! |
|