Glæðist laxveiðin!

19.júlí 2006

Breiðdalsá er á góði róli og komu 7 laxar á land í gær. Nú hafa veiðst 55 laxar sem er meira en áður hefur verið komið á land á þessum tíma áður í Breiðdalsá. Mest er það stórlax en sá smærri er farin að láta sjá sig síðustu daga.
Vegna forfalla voru að losna nokkrar stangir í ánni, t.d. 20-23 júlí 1 stöng, 25-27 júlí 1 stöng, og 1-4 ágúst voru að losna 2 stangir. Áhugasamir hafi samband sem fyrst og ekki er annað laust fyrr en seint á veiðitímanum.

Laxinn kom óvenju seint í Selá í Álftafirði og Laxá í Nesjum. Það var ekki fyrr en 16. júlí að fyrstu laxar veiddust í báðum þessum ám. Að kvöldi þess dags fékk Óli veiðivörður við Selá einn smálax og annar koma daginn eftir.
Laxarnir virðast vera stærri í Laxá, en fyrsti laxinn þar var 5 kg og hefur verið sett í fleirri væna þar.

Hrútafjarðará var í flóði síðustu helgi en veiðimenn fengu tvo laxa og urðu töluvert varir á sunnudagsmorgun er áin sjatnaði. Ekki hafa fengist nánari fréttir síðan, en skilyrði hafa verið góð þessa vikuna og því ætti veiðin að vera komin í gang þar líka.

Breiğdalur

Það er fallegt í Breiðdalnum. Veitt í Réttarhyl og gamla þjóvegsbrúin í baksýn.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is