Veiðisumarið 2006 var almennt gott í okkar ám og þegar rýnt er í veiðibækur kemur ýmislegt í ljós.
T.d. Minnivallalækur hefur bara einu sinni gefið fleirri stórurriða á sumri áður, og voru stærstu fiskar fjórir 5-6 kg. boltar. Veiðin var ívið meiri en 2005 eða um 370 fiskar og meðalþyngd hærri líka. Þó veiði sé lokið er Veiðihúsið Lækjarmót leigt áfram út allan veturinn enda stutt að fara frá Reykjavík.
Seglbúðasvæðið gaf tæplega 500 fiska, sem er þó minni veiði en sl. ár. Þó virtist vera töluvert af fiski en getur verið kúnst að fá hann til að taka þar. Aðallega var það sjóbirtingur að veiðast, en þó einnig staðbundinn urriði og bleikja.
Hrútafjarðará gaf 345 laxa og sá stærsti kom síðasta daginn úr Stokknum, áætlaður um 10 kg. Var hann setur í klakkistu og gekk svo klakveiðin mjög vel næstu daga á eftir. Um 170 bleikjur eru bókaðar einnig, sem er svipað og sl. ár. Nú í vor var sleppt gönguseiðum í Síká í nýja sleppitjörn þar. Vonast er eftir því að veiði glæðist þar strax á næsta ári, og er góður fluguveiðistaður rétt neðan við tjörnina. verður spennandi að sjá hvernig tekst þar til næsta ár.
Selá í Álftafirði var í góðum gír seinni hluta sumars loks þegar fór að rigna, og náðust á land 132 laxar sem er góð veiði á tvær stangir, sérstaklega miðað við verðlagningu þar, sem var mjög í hóf stillt. Fiskur var að ganga fram á síðasta dag septembermánaðar og mikið af laxi í ánni er veiði lauk.
Laxá í Nesjum náði ekki 100 löxum, og var lokatalan 92 laxar. Einstaklega lítið vatn megnið af tímanum setti alvarlega strik í reikninginn. Í klakveiði síðar í haust kom svo í ljós töluvert af laxi, sem voru þó að mestu hængar þó nokkrar hrygnur slæðust með líka.
|