Lax úr Minnivallalæk!

19.september 2006

Það vita fáir en það gengur lax á haustin í Minnivallalæk til hrygningar. Þá hefur hann farið upp fyrir fossinn Búða sem er stuttu neðar í Þjórsá en þar sem ármót Minnivallalækjar og Þjórsár eru. Í fossinum er fiskvegur og síðla sumars gengur lax og sjóbirtingur í einhverjum mæli þar upp. Snemma í september fékk erlendur veiðimaður þennan lax í Hólmakvíslum í Minnivallalæk, og er það annar laxinn sem veiðist á stöng í læknum svo vitað sé. Hinn veiddist í ágúst 1992 svo langt er um liðið.

Annars hefur lækurinn verið lítið stundaður það sem af er september, en í gær skaust veiðimaður eftir hádegi og fékk sex fiska. Oft virðist tökur aukast er haustar, væntanlega minna um fæði þá og fiskur orðin "agressívari"
er nær dregur hrygningu sem skýrir það. Er töluvert laust til mánaðarmóta
svo enn er séns að taka lokatúrinn áður en veiði líkur í lok september.

Minnivallalækur




Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is