Í gær 22. september fengust 25 laxar í Breiðdalsá. Þar með sló hún út heildarveiði sl. sumars sem var 815 laxar svo ljóst er að stefnir í nýtt met þriðja árið í röð í ánni. Fyrir gærdaginn voru komnir 800 laxar á land svo metið verður væntanlega vel slegið er veiði líkur 30. september. Eru góðar aðstæður, áin að sjatna eftir flóð og fiskur líka enn að gang. Nokkuð af lúsugum fiski og þar á meðal stórlax líka. Stærstu fiskar í gær voru 7-9 kg sem fóru í klakkistur eins og flestir aðrir stórlaxar í Breiðdalsá. Stefnir einnig í góða tölu í dag, heyrði í einum veiðimanni snemma í morgun sem var þá strax komin með tvo laxa, og báðir lúsugir! Tel örruggt að á milli 900-1.000 laxar veiðist sem er frábær árangur enda hefur verið mikið kostað til að koma Breiðdalsá úr rúmlega 100 laxa meðalveiði og tífalda hana á nokkrum árum!
Það hefur verið mikið fjör á bökkum Breiðdalsár í sumar, og á vef okkar má nú sjá myndband af viðureign erlends veiðimanns við lax á Stapabreiðu.
Leiðsögumaður er Heimir Karlsson.
|
 |
Heimir Karlsson leiðsögumaður við Breiðdalsá með glæsilega 6 kg hrygnu úr Klapparhyl.
|
|
En það gengur líka vel í Laxá í Nesjum eins og eftirfarandi póstur ber með sér, en þar eru nú komnir 77 laxar á land:
“Sæll Þröstur.
Við félagarnir vorum að veiða í Laxá í Nesjum dagana 16-18 sept.
Veiddum vel og mikið líf í ánni. Lönduðum 3 löxum og c.a 10 urriðum í fínni stærð
Við urðum varir við mikið líf á svæðinu og settum í c.a 7 laxa sem við náðum ekki á land.
Allveg ótrúlegt. Áin er alveg mögnuð og góð aðkoma að öllum veiðisvæðum. Alveg afbragðs fínt veiðihús.
Við vörum mjög ánægðir með allt.
Takk fyrir okkur.
Björn Þórðarson” |