Gengið hefur verið frá langtíma leigusamningum við Veiðiþjónustuna Strengir um tvær veiðiár í Jökulsárhlíð, Fögruhlíðará ásamt Fögruhlíðarós, og Kaldá. Verða þær seldar saman enda örstutt á milli þeirra og einungis verða fjórar stangir leyfðar samtals í þeim báðum. Miðað við lengd Fögruhlíðarár og einnig að Kaldá er töluvert mikið vatnsfall verður mjög rúmt um veiðimenn. Sameiginlegt veiðihús verður fyrir báðar árnar.
Fögruhlíðará er þekkt sjóbleikjuveiðiá, sérstaklega góð fyrri part sumars í Fögruhlíðarós, líkt og ósasvæði Breiðdalsár. Fögruhlíðará og Fögruhlíðarós er austast í Jökulsárhlíð. Þarna er fagurt umhverfi og vegaslóði liggur að ánni frá þjóðveginum, þar sem hann sveigir upp á Hellisheiði. Áin kemur upp inni á öræfum, en er fiskgeng að fossum miklum, um það bil 10-12 km frá sjó.
 |
| Fögruhlíðarárfossar efst í ánni. |
Mikið gengur af sjóbleikju í ána og Fögruhlíðarós er þekktur sjóbleikjustaður. Þar byrjar bleikja að ganga inn um mánaðamót maí og júní og framan af júlí getur verið mikið fjör í ósnum, þegar göngurnar koma inn á flóðinu. Ósinn er oftast veiddur af sandinum að sunnanverðu, en þó er vel hægt að standa á klöppum undir hlíðinni að norðan. Mikil náttúrufegurð er við flóann, fuglalíf mikið og auk þess leyfilegt eftir samkomulagi að veiða á nóttunni, standi þannig á sjávarföllum, og er haft fyrir satt að það sé kyngimagnað að standa við Fögruhlíðarós á sumarnóttu og draga sjóbleikjur.
En það veiðast líka nokkrir laxar í Fögruhlíðará og er vitað um 12 laxa sl. sumar sem veiddust aðallega á efsta hluta árinnar. Þar eru líka bestu skilyrðin fyrir lax og er stefnt að því að auka laxgegnd í Fögruhlíðará.
Káldá er minna þekkt sem veiðiá, enda engin skipulögð veiði verið stunduð þar. Líklega eitt af best geymdu leyndarmálum í laxveiði, því hún kom svo sannarlega á óvart er ég kom þar við eina klukkustund eitt sinn í sumar. Ætlaði að leita að fiski með spón og flugu og gerði mér ekki miklar vonir. Byrjaði í Einbúa sem er flúð rétt neðan við þjóðveg 917 sem er á milli Egilsstaða og Vopnafjarðar.
 |
| Veitt í Einbúa í haust. Dyrfjöll í baksýn |
Er skemmst frá því að segja að eftir sjö köst var ég búin að landa þrem löxum og þrem vænum bleikjum! Öllu sleppt enda auðvelt að losa spæni úr fiski án þess að særa. Í áttunda kastinu missti ég lax og í því níunda var ég ekki var og hætti þar með enda komið nóg þar! Ákvað þá að reyna aðeins ofar í Hálfsendahyl sem mér hafði verið sagt að gæfi stundum fisk.
 |
| Hálfsendahylur |
Ákvað taka með niður að hyl litla videoupptökuvél ef eitthvað mun gerast svo mér yrði þá trúað. Hafði ég vélina í hægri hendi meðan á viðureignum stóð en kom þó ekki að sök, og sleppti öllum fiski nema einum sem særðist illa. En sjón er sögu ríkari og afraksturinn má sjá hér! Sama sagan gerðist aftur, setti í hvern fiskinn á fætur öðrum, laxa og bleikjur og taldi nóg komið eftir rúman hálftíma og hætti veiðum. Mun þessi klukkustund við ánna vera ein sú eftirminnilegasta sem undirritaður hefur átt á bökkum veiðiár.
Sjá video
Í vor var sleppt 7.000 gönguseiðum í sleppitjörn ofar í Kaldá, og verður stefnt að því að auka veiði stórlega á næstu árum.
 |
Sleppitjörn vorið 2006 var gerð í Sauðá sem er ein af hliðárám Kaldár.
|
Áin er glæsileg og kemur á óvart hvað hún er mikil í vatnsmagni, og ljóst að lítil hætta er á of litlu vatni á þurrkatímabilum. Er Kaldá talin um 5-6 km fiskgengd og fellur hratt niður í Jökulsá á Dal sem nú er orðin tær og munum við birta fréttir sem varða hana einnig innan skamms.
Leyft verður að veiða með flugu og spón í báðum ám, en skyllt verður að setja laxahrygnur yfir 3 kg. í klakkistur eða ella sleppa þeim aftur. Á bökkum Kaldár er Félagsheimilið Hálsakot og verður því breytt í veiðihús.
 |
Þessu félagsheimili verður breytt í veiðihús þar sem veiðimenn sjá um sig sjálfir án þjónustu. Fyrir neðan er neðsti hluti Kaldár og í fjarska sést í Jökulsá á Dal.
|
Stefnt er að fjórum tveggja mann herbergjum og ætti öll aðstaða að verða orðin góð er veiði hefst á næsta ári. Nánari upplýsingar verða birtar á vefnum fljótlega og þegar söluskrá okkar kemur út í desember.
|