Loksins rignir!

28.ágúst 2006

Nú fer loks að sjá fyrir endann á langvinnum þurrkum á okkar laxveiðisvæðum.
Þrátt fyrir lítið vatn hefur gengið vonum framar í Breiðdalsá, en dagsveiðin þó rokkað á milli 4 og allt upp í 16 laxa á dag. Um 415 laxar komnir á land, og ennþá er talan hærri en á sama tíma sl sumar. Búast má við góðum tölum á næstu dögum með betri skilyrðum.

Selá í Álftafirði fékk loksins góðar aðstæður og lax sést víða um ánna að sögn veiðimanns sem var að ljúka veiðum þar. Þar hefur rignt vel og lítur vel út með framhaldið. Ennþá eru örfá laus holl í ánni og geta veiðimenn gert þar góð kaup ennþá.

Í Laxá í Nesjum hefur gengið þokkalega miðað við aðstæður en fiskur er aðallega í Gjúfrinu efst, og svo í Ármótahyl neðst sést og veiðist lax öðru hverju. Vantar enn meiri vatn til að fiskur dreifir sér betur.

Í Hrútafjarðará hefur verið með eindæmum lítið vatn og dræm veiði sl viku.
Þó sést töluvert af laxi t.d. í Bálki og segja kunnugir að sjaldan eða aldrei hafi verið svo mikið af laxi á þeim veiðistað áður. Nú stefnir í norðlægar áttir og úrkomu og þá getur orðið fjör á bökkum Hrútu, eins og oft áður í fyrstu haustrigningum á svæðinu.

Selá í Áltafirði

Hann er á í Selá í Álftafirði. Svona hafa aðstæður verið þar, sól og sumar og ekki beint hentugt til laxveiða, en þar er orðin breyting á
til batnaðar fyrir veiðimenn.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is