Fréttir af veiði!

28.maí 2006

Hrśtafjaršarį
 

Erfitt hefur verið um veiði vegna veðurs undanfarið, en þó fengu holl í vikunni í Minnivallalæk og Breiðdalsá góðan afla.

Í Breiðdal voru dagana 23-25 maí þrír veiðimenn sem ekki bara náðu boltableikjum, heldur líka vænum urriðum líka(sjá myndir). Veiddust þeir á neðstu veiðistöðum árinnar ofan við leirurnar, í Lambabakkahyl og Eyjanesi.
Og þar sem þeir voru óvenju bjartir töldu menn jafnvel að þetta væru sjóbirtingar og í óvenju góðum holdum. En líklegt má telja að þetta sé sami urriðinn og er í Skipakíl, sem hefur aðgang að sjóblönduðu vatni rétt fyrir neðan og það gerir hann bjartari en ella. En hreistursýni voru tekin og kemur það þá í ljós síðar við lestur þeirra.

Mjög erfitt hefur verið í Minnivallalæk vegna veðurs og kulda. En þó datt inn góð veiði á hollið líka dagana 23-25 maí. Náði það 10 fiskum, flesta á litlar púpur veitt uppstreymis með tökuvara, en einnig með straumflugum. Og einn náðist jafnvel á þurrflugu, sá var 60 cm langur og var eftirminnileg viðureign áður en honum var sleppt aftur.


Mikið hefur verið bókað undanfarið, en ennþá er gott úrval veiðileyfa þó að finna hjá okkur. Var t.d. að losna óvænt 9-11 júní í Minnivallalæk sem er helgarholl! Í Grenlæk er ennþá hægt að finna nokkur holl í júlí, en þá veiðist boltableikja og staðbundinn urriði. Og nokkur holl laus í Laxá í Nesjum og Selá í Álftafirði, líklega ein bestu kaupin á eyrinni í laxveiði á landinu miðað við verð!
Hrútafjarðará


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is