Myndbandskot frá Minnivallalæk á vefnum og bleikjan komin í Breiðdalsá!

29.apríl 2006

Veiði hefur gengið ágætlega í Minnivallalæk og hafa nú um 160 fiskar veiðst. Mikið vænn fiskur sem er farin að taka smærri flugur og púpur og fer að stytttast í að þurrflugan fari að virka ef hlýindin halda áfram. Stöðvarhylur hefur gefið best að vanda, en urriðar hafa þó sést og veiðst víða um lækinn. Nýlega var Kristján Benediktsson og félagar að veiðum þar og þeir sendu mér skot af viðureignum við tvö urriða veidda í Djúphyl og Arnarhólsþrengslum, sjá myndbandsskot .Þeir fóru ánægðir eins og meðfylgjandi póstur segir:

“ Sæll Þröstur.

Vorum að veiðum í Minnivallalæk 20-23 apríl síðastliðinn og eina sem ég get sagt er MEIRIHÁTTAR. Túrinn var hreint yndislegur í alla staði, húsið frábært, potturinn frábær, grillið frábært og áin hreint æðisleg. Fiskur útum alla á. Allir ótrúlega ánægðir og þú ert hér með kominn með áskrifendur að Minnivallalæk næstu áratugina ;) Þegar við fórum að morgni 23 apríl voru skráðir í veiðibókina 129 urriðar !!!! Ég vill fyrir hönd allra sem voru í þessu holli þakka þér kærlega fyrir þessa frábæru aðstöðu og frábæra veiðisvæði. Verð svo í bandi fljótlega til að panta næsta túr.

Kær kveðja , Kristján Benediktsson. ”

Minnivallalækur
 

Breiðdalsá
Súddi með nokkrar góðar sjóbleikjur úr vorveiði í Breiðdalsá í byrjun maí 2003. Í bakgrunni Veiðihúsið Eyjar sem var
þá í byggingu.

Súddi staðarhaldari og leiðsögumaður við Breiðdalsá hefur séð bleikju vaka á ósasvæðinu svo hún er komin þar! Verður spennandi að fylgjast með þegar silungsveiðin hefst þar mánudaginn 1. maí. Mikið bókað í vor á silungasvæðinu, en örfáir dagar eru lausir í næstu viku, og síðan ekki aftur fyrr en nokkrir dagar í júní. Töluvert laust eftir það. Hafið samband fljótlega þeir sem eru áhugasamir, þar sem almennt er mikil eftirspurn eftir góðri sjóbleikjuveiði. Breiðdalsá er nú í dag orðin næstbesta sjóbleikjuá landsins samkvæmt tölum Veiðimálastofnunar þrátt fyrir að lítil aðsókn hafi verið árlega í júlí-september, en þó er nóg af bleikju þá á svæðinu. Og ekki skemmir að verð er stillt í hóf eða kr. 6.000 stangardagurinn, og alltaf von á laxi einnig er kemur fram á sumar.

 



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is