Góð silungsveiði og vart við lax

29.júní 2006

Breiğdalsá
Góður morgun á silungsvæði Breiðdalsár.

Byrjunin var mjög góð fyrstu vikuna á Seglbúðasvæðinu í Grenlæk. Um 70 fiskar komu á land, að mestu vænar bleikjur sem voru að veiðast jafnvel ofar en veiðihúsið, sem er óvenjulegt svo snemma. Staðbundni urriðinn var líka óvenju vænn að sögn veiðimanna. Er þetta með betra móti á þessum slóðum og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.

Sjóbleikjan í Breiðdalsá gaf vel á silungasvæðinu um sl. helgi, og laugardagsmorguninn gaf sérstaklega vel, og þá stórar bleikjur allt að 2 kg! Um 300 bleikjur eru komnar þar á land í vor og slangur af urriða. Tvisvar hefur verið vart við laxa nýlega rétt ofan við ósinn á leið upp í ánna svo það lofar góðu þegar laxveiðin hefst þar næstkomandi laugardag.

Erlendir veiðimenn gera það nú gott í Minnivallalæk. Þeir veiða eingöngu á örsmáar þurrflugur og hafa verið að fá 12-15 fiska á dag allt að 3.5 kg!
Reyndar komu nýlega enn stærri fiskar á land, allt að 4-5 kg svo þeir stóru ætla að vera fleirri í ár en oft áður.

Veiðimaður sem átti leið um Hrútafjörðinn í vikunni og kíkti í veiðistaðinn Bálk við þjóveginn sá 3 laxa svo hann er mættur í Hrútu! Voru þeir meðalstórir, 3-5 kg svo von verður á fréttum um helgina þegar áin verður opnuð!

Fylgist með!



Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is