Ágæti veiðimaður,  

Þröstur Elliðason

Öðru frábæru veiðisumri er lokið og var veiðin mjög góð í flestum okkar veiðiám.

Ber þar hæst annað metsumar í röð í Breiðdalsá en þar fengust 814 laxar. Kom það ekki á óvart miðað við það ræktunarátak sem þar er í gangi. En sjóbleikjuveiðin var einnig met með 1202 bleikjur, ásamt 649 urriðum sem er mesta skráða silungsveiði þar einnig. Breiðdalsá er að festa sig í sessi sem bæði góð lax- og silungsveiðiá í gríðarlega fallegu umhverfi, og ekki skemmir að bjóða þar upp á glæsilegasta veiðihús landsins! Enda er eftirspurnin að aukast mikið og nauðsynlegt að bóka með góðum fyrirvara.
Einnig vil ég vekja athygli á að Veiðihúsið Eyjar er opið allt árið og er tilvalin gististaður fyrir vinahópa og einnig fyrirtæki til fundahalda. Góð rjúpnaveiði bíðst gestum hússins einnig væntanlega næsta haust ef hún verður leyfð aftur eins og líklegt er.

Hrútafjarðará stóð fyrir sínu árið 2005 og eitt besta laxveiðiár þeirrar ár var þá með 512 löxum veiddum, sem er frábær veiði á einungis þrjár stangir og allt á flugu! Mikið til bókað af fastahollum en áhugasamir eru settir á biðlista.

Laxá í Nesjum gaf 108 laxa á tvær stangir, minna en árið 2004, en engu að síður viðunandi. Minna var af fiski, en lítið vatn fyrri hluta sumars og kalt haust stóð veiði einnig fyrir þrifum. Seiðasleppingar heppnuðust mjög vel vorið 2005 svo það lítur vel út með veiðina fyrir næsta sumar. Leyfður verður nú maðkur allt veiðitímabilið, en áður var eingöngu leyfð fluguveiði í ágúst. Einnig verður verðlækkun fyrir sumarið 2006!

Selá í Álftafirði verður aftur í umboðssölu, en áin er mjög vinsæl tveggja stanga á í frábæru umhverfi. Þar var vel bókað sl. sumar og fengust 86 laxar en eingöngu fluguveiði er leyfð í ánni. Veiðileyfin eru á hóflegu verði og nauðsynlegt að bóka með góðum fyrivara.

Nes- og Árnesveiðar í Laxá í Aðaldal gáfu um 300 laxa sumarið 2005. Ein besta stórlaxaveiði landsins var þá að vanda, en um 30 laxar veiddust um eða yfir 10 kg. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur tekið við svæðinu en Strengir munu áfram bjóða stangir á bilinu 13-16 júlí og frá 30 ágúst til 2 september á þessu veiðisvæði fyrir næsta sumar.

Seglbúðasvæðið í Grenlæk er nú eitt besta sjóbirtingssvæði landsins og greinilegt að stofninn er í mikilli uppsveiflu á svæðinu. Um 600 birtingar veiddust árið 2005, en eitthvað minna en áður af bleikjunni og staðbundnum urriða. Er stóraukin eftirspurn enda frábært veiðisvæði- og veiðihús í boði.

Minnivallalækur er eitt vinsælasta veiðisvæði Strengja enda stutt frá Reykjavík að einstakri perlu sem áin er. Veiði var ágæt árið 2005, en kalt vor og haust setti þó nokkuð strik í reikningin. Þó veiddust um 300 urriðar og þeir stærstu allt að 6 kg! Veiðihúsið Lækjamót er einnig tilvalin staður fyrir fjölskyldur og vinafundi fyrir utan veiðitíma.

Laxveiðin jókst í Hvolsá og Staðarhólsá eða í 78 laxa sumarið 2005, en fyrst og fremst er hún þekkt sem sjóbleikjuveiðiá. Hún var reyndar í minna mæli eins og víðar þetta sumarið og veiddust um 400 bleikjur.

Póstlisti: Sendið okkur netfang og heimilisfang til að komast á póstlista okkar!


Sala veiðileyfa

Sala veiðileyfa er á skrifstofu okkar að Smárarima 30 í Grafarvogi.
Sími og fax er 567 5204 gsm 660 6890
Pósthólf númer 12024, 132 Reykjavík.
Greiðslukortaþjónusta Visa-Eurocard.
Kort af veiðisvæðum fást á skrifstofunni.

Góða skemmtun veiðisumarið 2006.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is