Þröstur Elliðason


Kæri veiðimaður,

Veiðivertíðinni 2006 er að ljúka á næstu dögum og Strengir geta vel við unað með árangur á veiðisvæðum sínum.

Ber þar hæst þriðja metsumarið í röð í Breiðdalsá en þar fengust 937 laxar og var metið slegið um 123 laxa. Kom það ekki á óvart miðað við það ræktunarátak sem þar er í gangi. Sjóbleikjuveiðin var einnig afar góð, sérstaklega á vormánuðum þrátt fyrir rysjótta tíð, en lokatölur eru þó ekki komnar í hús. Síðsumars og um haustið var bleikjan lítið stunduð. Mikið veiddist einnig af fallegum staðbundnum urriða og flott sjóbirtingsskot komu af og til, ekki síst um vorið og voru á stundum vænir fiskar á ferð, 6-7 punda. Breiðdalsá er að festa sig í sessi sem bæði góð lax- og silungsveiðiá í gríðarlega fallegu umhverfi, og ekki skemmir að bjóða þar upp á glæsilegasta veiðihús landsins! Enda er eftirspurnin að aukast mikið og nauðsynlegt að bóka með góðum fyrirvara.

Einnig vil ég vekja athygli á að Veiðihúsið Eyjar er opið allt árið og er tilvalin gististaður fyrir vinahópa og einnig fyrirtæki til fundahalda. Góð rjúpnaveiði bíðst gestum hússins einnig.

Hrútafjarðará stóð fyrir sínu árið 2006 þrátt fyrir að ár á vestanverðu Norðurlandi væru margar í öldudal. Alls veiddust 345 laxar sem er talsvert minna en í fyrra, en samt vel yfir meðalveiði og þurrkar um hásumarið höfðu slæm áhrif á veiðiskapinn. Hrútan átti því innistæðu fyrir betri veiði, því mikil lax var í henni, það sást best þegar hausttíðin var hagstæð og þá veiddist afar vel, m.a. tuttugu pundari á lokadeginum.

Laxá í Nesjum gaf innan við 100  laxa á tvær stangir, talsvert minna en árið 2005, og í takt við afar óhagstæða tíð, en regngusurnar sem bættu síðsumars í Selá og Breiðdalsá virtust hafa hrist allt úr sér þegar þær komu yfir Almannaskarðið. Minna var af líka fiski. Þó fengu nokkur holl fína veiði og góðar stundir.

Selá í Álftafirði var erfið sökum þurrka um hásumarið, en rigningar hresstu ána heldur betur er sumri hallaði og haustið reið í hlað. Áin er mjög vinsæl tveggja stanga á í frábæru umhverfi. Þar var vel bókað sl. sumar og fengust 132 laxar, sem er mun betra en í fyrra. Eingöngu fluguveiði er leyfð í ánni. Veiðileyfin eru á hóflegu verði og nauðsynlegt að bóka með góðum fyrivara.

Nes- og Árnesveiðar í Laxá í Aðaldal gáfu nálægt 300 laxa sumarið 2006. Ein besta stórlaxaveiði landsins var þar að vanda, en milli 20 og 30 laxar veiddust um eða yfir 10 kg. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur tekið við svæðinu en Strengir munu líklega áfram bjóða stangir þar.

Seglbúðasvæðið í Grenlæk er eitt besta sjóbirtingssvæði landsins og greinilegt að stofninn er í mikilli uppsveiflu á svæðinu. Þar stendur veiði enn yfir og því engar lokatölur komnar. Mikill birtingur hefur gengið í ána og hafa hollin sum verið í góðum málum, en öðrum gengið verr að setja í fiska þó nóg sé af þeim, enda birtingurinn dyntóttur. En besta hollið var með hundrað fiska á sex dögum.

Minnivallalækur er eitt vinsælasta veiðisvæði Strengja enda stutt frá Reykjavík að einstakri perlu sem áin er. Vertíðin 2006 var ágæt en lokatölur liggja þó enn ekki fyrir. Þá hefur verið meira af tröllunum sem lækurinn er frægur fyrir heldur en allnokkur síðustu árin.  Veiðihúsið Lækjamót er einnig tilvalin staður fyrir fjölskyldur og vinafundi fyrir utan veiðitíma.

En kæru viðskiptavinir, fylgist grant með heimasíðu okkar á Næstu vikum, því innan tíðar berum við fram tíðindi fyrir næsta ár, 2007. Vissir hlutir eru í vinnslu, en óhætt að segja að framboð okkar mun breytast nokkuð fyrir komandi vertíð. Verða m.a. spennandi nýjungar. Eigi að síður erum við byrjuð að taka við bókunum fyrir 2007 og allra best að hafa samband sem allra fyrst.

Póstlisti: Sendið okkur netfang og heimilisfang til að komast á póstlista okkar!


Sala veiðileyfa

Sala veiðileyfa er á skrifstofu okkar að Smárarima 30 í Grafarvogi.
Sími og fax er 567 5204 gsm 660 6890
Pósthólf númer 12024, 132 Reykjavík.
Greiðslukortaþjónusta Visa-Eurocard.
Kort af veiðisvæðum fást á skrifstofunni.

Góða skemmtun veiðisumarið 2007.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is