Súddi með fyrsta laxinn!

1.júlí 2007

Fyrsta vaktin er búin í Breiðdalsá þennan morgun og var það "Suddi" (Sigurður Staples) staðarleiðsögumaður sem fékk þann fyrsta og eina sem kom á land þá. Var það á Frances tommu keilu túpu í Neðri-Beljanda, 3 kg grálúsug hrygna sem blæddi svo hann gat ekki sleppt laxinum, en skyllt er í sumar að sleppa hrygnum aftur í Breiðdalsá. Hann varð var við fleirri laxa en ekki komu aðrir á land.

Í Hrútafjarðará hófst veiði einnig í morgun, en ekki hefur frést af neinum á land þar. En laxar hafa sést á neðsta veiðistaðnum Dumbafljóti í morgun og í Síká. En vatn er mjög lítið og erfiðar aðstæður til veiða.

Breiðdalsá
 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is