Frábær veiði og veður

1.maí 2007

Byrjunin gat ekki verið betri á silungasvæðinu í Breiðdalsá í morgun. Þá komu um 40 sjóbleikjur á land í hreint út sagt frábæru veðri og fiskur víða að vaka. Mest var veitt við þjóðvegsbrúnna en einnig upp við Ytri-Grjóttanga þó í minna mæli þar. Ný fluga sem heitir Snædís gaf mest, en Óli Vilhjálmsson frá Hornafirði fékk 15 bleikjur á þá flugu.
En myndir segja meira en mörg orð um þennan frábæra morgun!

Breiðdalsá
Nokkrar fallegar bleikjur, og í góðum holdum enda vorar snemma í ár.       

Breiðdalsá Breiðdalsá
Óli út í miðri á en á þessum stað setti hann í hverja bleikjuna á eftir annarri en margar fóru þó af. Breiðdalur í allri sinni dýrð í bakgrunni

Fjör hjá Guðjón Pétri Jónssyni og aðrir veiðimenn í baksýn. Oft voru tveir með fisk á í einu."

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is