Veiðifréttir

1.september 2007

Það rignir vel víðar um land og þar með komin góður kippur í veiði í margar laxveiðiár. En einn landshluti ætlar að verða útundan í alvöru úrkomu og það er sunnanverðir austfirðir og að Hornafirði þar sem Breiðdalsá og Laxá í Nesjum eru staðsetttar. Hefur rignt aðeins er lægðirnar fara yfir en ekkert sem breytir miklu um vatnsmagn ánna, sem hafa fengið einhverja þá mestu þurrka sem komið hafa þar um slóðir. Þó er reytingsveiði í Breiðdalsá, 8-10 laxar á dag, en leiðsögumenn og aðrir eru sammála um að meira magn er af laxi í ánni en nokkurntímann áður. Í dag byrjaði aðeins að rigna ívið meira en áður í sumar og komu þá strax 22 laxar á land. Fiskur er að ganga á hverjum degi ennþá og bæði smálax og stórlax og ef rignir meir má búast við stórum tölum næstu daga. Nokkrir vænir 7-8 kg laxar hafa verið teknir í klak undanfarið og mun stærri fiskar sjást en hafa ekki tekið agnið enn. Um 370 laxar hafa veiðst.
Laxá í Nesjum rennur varla og engin lax komist í ánna nema neðst við Ármótahylinn. Síðasta tveggja daga holl var þar með 5 laxa á tvær stangir, sem er bara allt í lagi miðað við aðstæður. Veitt verður út september í Laxá.

Ekki þarf af hafa áhyggjur af vatni í Kaldá og Fögruhlíðará ásamt Jöklu, alltaf nóg vatn þar og reyndar er lax meira á svæðinu en margir halda! Um 50 laxar eru komnir þar á land, aðallega úr Kaldá en einnig nokkrir úr efsta hluta Fögruhlíðarár. Stórar bleikjur hafa líka verið að fást og þá helst úr Kaldá í bland við laxinn. Eru nokkrar bleikjur stærri en sumir laxarnir sem koma á land, eða 5-6 pund.  
Ef fram fer sem horfir stefnir 100-200 laxa af svæðinu og það er framar vonum. Sleppt var litlu magni gönguseiða í Kaldá sumarið 2006 sem greinilega er að skila sér ágætlega.

Hrútafjarðará er loks í góðu standi og veiði verið góð undanfarið. Flest tveggja daga holl eru með um 20-30 laxa og áin komin nálægt 250 löxum. Veitt verður út september og má búast við ágætum lokatölum þar.

Kaldá
Frá Sauðárbreiðu í Kaldá, en þar hefur veiðst vel enda sleppitjörn staðsett þar í Sauðá sem er hlíðará Kaldár.
Breiðdalsá
Ung veiðikona Theodóra Gríma Þrastardóttir kemur fallegri hrygnu í klakkistu. Tók laxinn fluguna Green Brahan og var það fyrsti flugulax Grímu.    

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is