24 fiskar fyrsta daginn!

2.apríl 2007

Það fengust 24 fiskar í gær opnunardaginn í Minnivallalæk, sem er líklegasta ein sú besta opnun sem þar hefur verið. Allir komu úr Stöðvarhyl og var öllum sleppt aftur. Fóru veiðimenn ekkert annað og mjög mikið af fiski virtist vera þar. Reyndar var eitthvað reynt í Húsabreiðu fyrir framan veiðihúsið án þess að vera varir.  
Engin risi var í aflanum, en heldur engin smáfiskur, fiskar á bilinu 1.5-3 kg að sögn veiðimanna.

Einhverjir fiskar voru komnir á land í morgun líka, en vonandi fara menn að reyna aðra veiðistaði í dag.

Minnivallalækur

Ljósmynd að kvöldlagi af stórurriða á yfirborðinu í Stöðvarhyl .Þar er nú mikið fjör á köflum, tökur í hryðjum að sögn veiðimanna og stundum þá 2-3 stangir með hann á í einu! 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is