Veiði hófst í Fögruhlíðará í gær og var farið í ósinn um morguninn og kvöldið. Skúla Björn Gunnarsson forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri sendi þessa mynd sem tekin var um morgunninn. Fengu þeir þrjár bleikjur og aðrir sem fóru síðan um kvöldið fengu einnig þrjár bleikjur svo hún er allavega mætt í ósinn. Eftir einmuna kaldan maí mánuð spáir hann sunnanáttum á svæðinu næstu vikuna og hita allt upp í 20 C. Hugsanlega fer bleikjan þá að vaða inn í ósinn í miklu mæli eins og sögur eru til um. Lítið er bókað í júní og verð hóflegt eða kr. 3.000 stangardagurinn.
Í júlí verður glæsilegt veiðihús tekið í notkun sem mun þá þjóna einnig nálægri Kaldá og neðri hluta Jöklu en nánar um það síðar. En síðari hluta júlí eru ennþá lausar stangir á svæðinu og þá innifalið gisting án þjónustu í nýja veiðihúsinu að Hálsakoti