Laxa og urriðafréttir úr Minnivallalæk

4.apríl 2007

Var að koma í bæinn eftir einn dag í Minnivallalæk og hefur "fjölmiðlafárið"vegna stórurriðans farið að mestu fram hjá mér þar til nú, en eins og myndir af honum sýna í fjölmiðlum var þarna um að ræða hoplax en ekki urriða! Er mér bárust fréttir af þessum fiski fyrst í gegnum síma að kvöldi 2. apríl hafði enga ástæðu til að vefengja það, enda kemur það ekki á óvart að urriðar af þessarri stærð veiðist í læknum eins og reynslan sýnir. En almennt er það ekki á allra vitorði að lax gengur einnig í litlum mæli úr Þjórsá síðla sumars og á haustin í Minnivallalæk til hrygningar. Tvisvar áður hafa laxar veiðst á stöng þar að því best er vitað, og báðir í ágústmánuði árið 1992 og 2006.

Nú eru 50 fiskar komnir úr Minnivallalæk, og þar til í gærmorgun nánast eingöngu úr Stöðvarhyl. En við nokkrir félagar áttum bágt með að trúa því að fiskar væru ekki víðar, og eins og kom í ljós náðum við 14 urriðum þennan dag og mikið á öðrum stöðum víða um lækinn. Ekkert smælki en fallegur fiskur frá ca. 1,5 kg og upp í 65 cm langa og vel haldna fiska sem eru þá allt að
+3,5 kg að stærð. Þetta er nú eins og algeng stærð í smálaxaveiði í +mörgum
laxveiðiám í dag! Flugur eins og Black Ghost og aðrar hefbundnar straumflugur hafa verið sterkar, en uppstreymis púpuveiði með tökuvara gefur ekkert síður. Síðan er bara tímaspursmál hvenær þurrfluguveiðin hefst af krafti, en það fer eftir tíðarfari.

PS: Var að berast eftirfarandi sms frá veiðimönnum við lækinn í kvöld:  “Það náðist 10 punda fiskur í Viðarhólma, að sjálfsögðu sleppt. Annars rólegt, mikill vindur!”

Minnivallalækur
Minnivallalækur Minnivallalækur

Átök á Húsabreiðu í gær, Björn K. Rúnarsson leiðsögumaður og
verslunarstjóri landar einum vænum urriða af ísaldarstofni!   


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is