Var að frétta að veiðimaður í Hrútafjarðará hafi fengið 80 cm bleikju í Maríubakka í morgun, en ekki er búið að vikta hana. Miðað við lengd gæti verið um 10 punda bleikju að ræða og ef rétt reynist er það ein sú allra stærsta sjóbleikja sem veiðist hefur lengi á stöng. Nokkrar aðrar bleikur hafa líka veiðst í Hrútu, en engin lax komin á land ennþá. Vonandi að það rigni fljótlega því áin rennur varla lengur að sögn veiðimanna!
Það hafa fleirri stórsilungar veiðst hjá okkur undanfarið, í Minnivallalæk kom einn 7-8 punda urriði í vikunni og alltaf reytingur flesta daga. Þó er áin mjög erfið og viðkvæm í þessum veðurskilyrðum, og fiskur styggur.
Breiðdalsa hefur gefið 4 laxa þennan stutta tíma sem veitt hefur verið, en veiðimenn hafa þó misst mun fleirri svo það lofar bara góðu. Vekur það athygli að mest eru það smálaxar sem vart verður við, sem er ekki algengt svona snemma sumars. Vonandi veit það á gott sumar varðandi smálaxagengdina.
|
 |
| Stórglæsileg Jökla þann 30. júní sl |
|