Almennt er talið að rjúpnaveiðin hafi farið rólega af stað núna í fyrstu opnun 1-4 nóvember. Virtist rjúpan vera dreif og ekki í hópum eins og æskilegt er til veiða, veður og aðstæður virtust hafa þessi áhrif víða. Við höfum tvo rjúpnaveiðipakka að bjóða upp á núna í nóvember og var veiðinni misskipt um helgina, en kíkjum nánar á það.
Á okkar svæðum í Breiðdal var aðeins reytingsveiði, fimm veiðimenn þar náðu um 30 fuglum á rúmum þrem dögum. Svæðin sem Strengir hafa aðgang að þar eru nokkur, Heydalir sem er stærst og hvað vinsælast, Eyjar, Lágafell, Fell og einnig í nálægum Stöðvarfirði er bærinn Stöð með ágætt rjúpnaveiðisvæði.
Allt að 10-12 veiðimenn geta veitt auðveldlega á þessum svæðum og klassagisting fylgir með í Veiðihúsinu Eyjar. Er uppbókað á þá daga sem leyft er að veiða núna í nóvember.
Í framhaldi af byggingu stórglæsilegs veiðihúss í Jökulsárhlíð nú í sumar er boðið upp á rjúpnapakka á nálægum svæðum. Þau eru Sleðbrjótur og Skriðufell rétt við Veiðihúsið Hálsakot, Hrólfsstaðir í Jökuldal, og á Jökuldalsheiðinni eru rjúpnasvæði við Arnórsstaðir og Ármótasel. Hámark 5-6 manns geta gist í veiðihúsinu og reyndar var það svo að einungis voru þrír menn að veiðum um helgina. Þurftu þeir lítið að hafa fyrir því að taka kvótann því þegar skotist var út sitthvorn daginn rétt við húsið á Sleðbrjótssvæðinu var afraksturinn 38 rjúpur! Mikið af fugli var á svæðinu og önnur svæði því ekki reynd. Að mestu er uppbókað en hollið 22-25 nóvember er enn laust.
|
 |
Mynd tekin 1. nóvember og fyrstu rjúpurnar sem náðust í landi Eyja. Sést í veiðihúsið og Breiðdalsá niðri í dal og Heydalafjall er í bakgrunni.. |
|