Í lok júlí fékkst einn stærsti lax sumarsins á landinu í Hrútafjarðará. Var það Óli Björn Zimsen sem fékk þann stóra í Stokknum, en svo slysalega vildi til að flugan sem var Sunray Shadow húkkaðist í laxinn og var honum auðvitað sleppt aftur. Viðureignin stóð í 40 mínutur upp og niður hylinn þar til laxinum var strandað á sandrifi neðst í veiðistaðnum. Var hann þar lengdarmældur 105 cm sem gerir þyngd miðað við viðmiðunartöflur 11.5 kg! Var sandinum skolað af laxinum og síðan sleppt og var honum ekki meint af enda hafa fleirri veiðimenn séð hann síðan í hylnum í fullu fjöri. Reyndar svo að hann tók fluguna hjá einum veiðimanni nýlega og rauk þá strax af stað svo að sá á fingri veiðimannsins á veiðihjólinu er línan rauk.
Mikil lax er í Hrútu en sáralítið vatn er til vandræða eins og víða annarsstaðar. Um 80 laxar hafa veiðst en það verður veisla loks er það rignir.
|
 |
| Óli Björn með þann stóra rétt eftir löndun! |
|