Glæsilegt veiðihús tekið í notkun og góð laxveiði byrjuð í Kaldá!

12.ágúst 2007

Eitt glæsilegasta veiðihús landsins hefur verið tekið í notkun við Kaldá í Jökulsárhlíð, sem heitir nú Veiðihúsið Hálsakot en þar var fyrir félagsheimilið Hálsakot áður sem það ber nafn sitt af. Hefur því verið breytt í glæsilegt þjónustuhús með stórri setu-og borðstofu með arin, góðu eldhúsi, vöðlu og þurrkherbergi, fiskmóttöku og góðu andyrri. Á verönd tengt við húsið er risið minna hús með tveimur stórum herbergjum, og er hvort með sér baðherbergi með sturtu. Veiðimenn við Kaldá og Fögruhlíðará hafa húsið til afnota í sumar. Í framtíðinni er stefnt að því að fjölga herbergjum eftir því sem fleirri ár á svæðinu ásamt Jöklu verða farnar að bjóða upp á aukna laxveiði í framhaldi af fiskræktarátaki sem nú er hafið víða á þessu gríðarlega stóru vatnasvæði.
Reyndar var sleppt gönguseiðum í Kaldá vorið 2006 í litlum mæli í tilraunaskyni. Það hefur gefið góða raun því þann 8. ágúst kom góð ganga í ánna og fékk þá enskur veiðimaður tvo laxa í Hálsendahyl sem er skammt frá veiðihúsinu. Sá gerði betur daginn eftir og landaði sex löxum aðeins ofar á 2-3 veiðistöðum, alla á flugu og var flestum sleppt aftur. Greinilegt er að lax er að dreifa sér um ánna og sérstaklega í nágrenni sleppitjarnarinnar. Því er ljóst að tilraunin hefur heppnast og má búast við góðu sumri í Kaldá í laxveiði, ásamt því að nokkuð hefur veiðst af sjóbleikju þar einnig. Fögruhlíðará hefur gefið um 200 bleikjur en mest af því var veitt í júlí.

Kaldá
Veitt í Hálsendahyl í Kaldá nýlega.
Hrútafjarðará
Veiðihúsið Hálsakot er risið við Kaldá, jökla er í baksýn en Kaldá rennur neðarlega í hana.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is