Einnig má nefna að á silungasvæði Breiðdalsár er nú stóraukinn laxveiðivon í júlí og til september vegna mikillar laxagegndar í gegnum svæðið þá, og vitað er að lax er einnig nú farin að leggjast á efstu veiðistaðina eins og Eyjanes. Og ekki skemmir hóflegt verð fyrir eða kr. 7000 stöngin á dag allt veiðitímabilið.
Bókanir í silungsveiði eru yfirleitt síðar en í laxveiði, en þær eru þó þegar orðnar töluverðar eins og sjá má á vefnum. Búast má við að mikið verði bókað í bleikjuveiði okkar í Breiðdalsá og Fögruhlíðará í vor og fyrri part sumars enda fáir betri kostir á landinu í dag þar sem enn er möguleiki á góðri sjóbleikjuveiði. Almennt hefur hún nánast hrunið víða, en á þessum svæðum má enn ganga að sjóbleikjunni nokkuð örruglega.
Minnivallalækur er á hefbundnu róli, farið að bókast um helgar í vor og fyrri part sumars, en örruggara er að vera tímanlega með bókun þar því hann selst að mestu upp að vanda á því tímabili. Einnig er síðsumar og haustveiði að bókast betur með hverju ári, enda fer urriðinn þar oft í tökustuð er líður að hausti.
Jökla (Jökulsá á Dal) er spennandi verkefni þar sem rennt er blind í sjóinn með veiði á því vatnasvæði eftir að jökulliturinn hvarf af ánni. Bæði er það lax og silungur sem vonir eru bundnar við að veiðist og verður reynslan að skera úr um það. Hægt verður að fá veiðileyfi með stuttum fyrirvara og verð er stillt í hóf eða einungis kr. 2.000 stöngin á dag. Eftir á að færa inn nánari upplýsingar á vefinn en það verður gert fljótlega.
Söluskrá er í prentun og verður fljótlega send út á póstlista okkar og dreifð á allar helstu sportvöruverslanir. |