Veiðifréttir Strengja

16.júlí 2007

Það gengur frekar rólega í laxveiðinni ennþá í okkar ám, en þær eru bæði vatnslitlar sumar hverjart og líka frekar síðsumarsár svo þetta er rétt að byrja.

Hrútafjarðará er eingöngu komin með 2 laxa og vatn með eindæmum lítið, það lítið að veiðist helst í neðsta veiðistaðnum Dumbafljóti og fiskur á erfitt með að komast ofar. Reytingur af bleikju hefur veiðst þar sem bætir aðeins upp laxleysið.

Breiðdalsá kroppast upp með einn og einn lax ennþá, svo sem ekkert óeðlilegt en fljótlega ætti að hitna í kolunum miðað við reynslu undanfarinna ára. Vatnið er ennþá í lagi á neðri svæðum þótt ekkert hafi rignt í langan tíma, því Tinnudalsá hefur töluverðan snjóaforða eftir veturinn og heldur vatnsmagninu uppi. Bleikjuveiðin hefur valdið vonbrigðum í vor, en í gær virtist koma töluvert af bleikju inn og komu nokkrar vænar bleikjur þá á land. Hægt er að fá veiðileyfi í bleikjuna með stuttum fyrirvara. Laxveiðileyfin í Breiðdalsá voru fyrir löngu uppseld en nýlega losnuðu örfáar stangir hjá erlendum veiðimönnum í 3 daga holli 29. júlí til 1. ágúst sem eru nú í endursölu hjá Strengjum. Fluga eingöngu leyfð á þeim tíma. Spyrjið um nánari upplýsingar.

Breiðdalsá

Vænn lax nýlega veiddur á Skammadalsbreiðu af Kristjáni Benediktsyni.

Breiðdalsá
Bleikjur sem írskur veiðimaður fékk í gær.

Lítð hefur verið reynt í Laxá í Nesjum en fyrir nokkrum dögum var skotist í ánna og fyrsti laxinn kom þá á land úr Ármótahyl sem er neðsti veiðistaðurinn í ánni. Lítið vatn hindrar för hans ofar, en það gæti orðið fjör er loksins rignir fyrst laxinn er allavega mætur neðst. Örfá holl eru laus ennþá á topptíma í ágúst og byrjun september.  

Laxá í Nesjum
Siggi með fyrsta laxinn úr Laxá í Nesjum.

Minnivallalækur er aldeilis að gera það gott þessar daganna, mikil fiskur sést í blíðunni um alla á og stórfiskar veiðast oft á þurrflugur og litlar púpur, fiskar allt að 7-8 pund! Stefnir í eitt besta sumar þar lengi, en vorið var þó skrykkjótt í erfiðu tíðarfari þá. Mikið bókað í júlí en fer að losna um daga eftir það.

Fögruhlíðará hefur verið upp og niður í bleikjunni í sumar,  en undanfarna daga hefur ósinn beinlínis kraumað af vænni bleikju á fjörunni. T.d. fengu Svissneskir veiðimenn á tveim dögum í vikunni 40 bleikjur og misstu margar, algeng stærð var 2-4 pund! Og fyrstu bleikjurnar hafa veiðst í Kaldá við Brúarhylinn og vonandi fer líka fyrsti laxinn að veiðast fljótlega á svæðinu. Töluvert laust ennþá í seinnihluta júlí en uppselt eftir það. Jökla er tær og falleg eins og er en lítið hefur verið reynt að veiða þar það sem af er sumri.

Fögruhlíðará
Bleikjan í Fögruhlíðarós getur verið bísna væn eins og þessi. Í baksýn sést í nýja veiðihúsið sem er í byggingu og verður opnað í lok júlí.

Við höfum endrum og eins útvegað veiðimönnum leyfi í öðrum veiðiám og nú eru komin í sölu hjá Strengjum forfalladagar í Húseyjarkvísl daganna 30. júlí til 3 ágúst þrjár stangir í tvo eða 4 daga á hóflegu verði með góði veiðihúsi innifalið. Spyrjið um nánari upplýsingar.

Húseyjarkvísl

Frá Húseyjarkvísl, en þar eigum við óvænt holl til sölu á topptíma!


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is