Fyrir rúmri viku sáust fyrstu laxar í Breiðdalsá er menn voru á ferð við ármót Tinnu og Breiðdalsár, en þá sáust 3 fiskar stökkva þar. Er það óvenjulegt að lax sjáist svo snemma og líka svona ofarlega í ánni. En fyrir stuttu sást lax stökkva í fossinn Efri-Beljanda, en einnig hafa sést laxar sést við ósa á silungasvæðinu undanfarna daga. Þar hefur reyndar sjóbleikjuveiðin ekki náð sér á strik þrátt fyrir bætt skilyrði, hvað sem um veldur. Reyndar var mikið líf þar niðurfrá í gær, en þar var þá um að ræða laxaseiði sem voru að ganga til sjávar, reyndar flest villt þar sem seiði úr sleppingum eru flest enn í tjörnum. Svo það lofar góðu með næstu ár ef sterkir árgangar eru þar að auki að skila sér úr Breiðdalsá.
En það verður spennandi að opna 1. júlí, gæti orðið frábær dagur!
Minnivallalækur hefur tekið aðeins kipp eftir daufan maí, enda skilyrði betri. Þurrflugan farin að virka og smærri pöddur. Engin tröll nýlega, en þó upp í 4 kg fiska.
Fögruhlíðará hefur ekki verið mikið stunduð en þó er skotist af og til. Kropp af bleikju ennþá, en við sjáum hvað setur. En það veiðist meira en sjóbleikja á svæðinu, nýlega fengu erlendir veiðimenn á stuttum tíma 20 urriða ofar í ánni sem þeir slepptu aftur, en þeir voru allt að 50 cm langir að þeirra sögn, og frábær skemmtun á léttar græjur.
Mikið bókað í laxinn, uppseldar Breiðdalsá og Hrúta en þó laus eftirfarandi tímabil í Laxá í Nesjum: 10-13 ágúst, 21-23 ágúst, 29-31 ágúst, 4-8 september og 24-28 september. Laus holl á stangli í júlí í Minnivallalæk en töluvert ennþá laust í ágúst og september. Í Fögruhlíðará er töluvert laust í júní, en síðan aftur í seinnihluta júlí ásamt Kaldá en þær eru þá seldar saman. Silungasvæði Breiðdalsá er mikið bókað til 17. júlí, en eftir það má fá stangir með stuttum fyrirvara.
 |
| Tilraunaveiði í Jökulsá á Dal (Jöklu) hefst í lok júní. Vatnasvæðið er gríðarlega víðfemt og leynir á sér, fjölmargir hugsanlegir veiðistaðir eru á 120 km löngu svæði! Þessi mynd var tekin nýlega ofarlega í jökuldal af ánni og segir meira en mörg orð. |
|