Breiðdalsá 2007

16.október 2007

Þrátt fyrir góðan endasprett náði Breiðdalsá ekki sömu laxveiði og árið 2006, en það munaði þó ekki nema 64 löxum, nú 873 á móti 937 í fyrra. Þó var mun meiri lax í ánni en nokkurntímann fyrr en aðstæður voru erfiðar sökum vantsleysis megnið af sumrinu. Þó voru að veiðast 8-12 laxar á dag á þeim tíma og lax að ganga flesta daga þrátt fyrir þessar aðstæður. Hefðu ógurlegar tölur komið ef rignt hefði fyrr, en það þurfti að bíða þar til eftir fyrstu viku septembermánaðar að það rigndi að einhverju ráði síðan 2.
júní! Og þriðja vika septembermánaðar varð metvika með um 180 laxa, en almennt voru að veiðast á bilinu 20-30 laxar á dag síðustu þrjár vikurnar í september. Stangveiði lauk 30. september og klakveiði hófst í beinu framhaldi og er nú nýlokið og gekk það ágætlega. Lax var enn að ganga í síðustu viku sem er reyndar ekkert einsdæmi í Breiðdalsá. Ágæt hlutfall var af tveggja ára laxi úr sjó og stærsti laxinn var 8.5 kg sem erlendur veiðimaður veiddi í 23. ágúst í Réttarhyl.

Grenlækur
Glæsilegur sjóbirtingur úr Breidalsá 4. september.

Silungsveiðin var minni í Breiðdalsá, sérstaklega sjóbleikjan eins og víða annarsstaðar. Þó var vart við meira af vænni bleikju í uppánni með laxinum í sumar en sést hefur áður, en silungasvæðið var með mun minna af sjóbleikju en oft áður. En á móti kom að laxveiði var töluverð þar niður frá framan af sumri, sérstaklega á efsta veiðistaðnum Eyjanesi. En stærsti silungur sem sögur fara af í ánni veiddist í byrjun september er spænskur veiðimaður fékk tæplega 10 punda sjóbirting í Skammadalsfossi á spón. Vildi hann taka fiskinn með sér út og stoppa hann upp, enda engin venjulegur fengur. Tæplega 700 silungar veiddust sem skiptast nokkuð jafnt á milli urriða og bleikja.

Breiðdalsá Breiðdalsá
Klaklaxaflutningar við Breiðdalsá nú í haust, það gengur oft mikið á þá!

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is