Um 80-90 fiskar hafa veiðst í Minnivallalæk það sem af er apríl. Er það með því betra svona í byrjun og þrátt fyrir ótíð bara furðu gott gengi. Töluvert sést af fiski og nokkuð dreift um lækinn. Er líklegt að sú uppsveifla sem hófst sumarið 2006 eftir tveggja ára niðursveiflu sé rétt að byrja, enda hafa verið auknar kröfur um að veiða og sleppa hin síðari ár. Nú skal sleppt öllum fiski, reyndar virðist einhver misskilningur vera uppi um að megi hirða fiska yfir 40 cm en það er ekki rétt. Verður veiðivarsla stórlega hert til að fylgja þessu eftir, en starfsmenn Fiskeldis Fellsmúla taka nú að sér veiðieftirlit við Minnivallalæk í ár.
Reyndar var lækurinn í mikilli uppsveiflu í veiði árin 2001-2003 þrátt fyrir að ekki væri 100% veitt og sleppt þá. En síðan var vart við mikið af mink á svæðinu og varla leið svo dagur að ekki sæist til hans við árbakkann eða jafnvel út í einhverjum hylnum, sérstaklega sumarið 2005. En gert hefur verið sérstakt átak síðan þá og t.d. hafa minkabanarnir Einar I. Magnússon og Sæmundur Ingvarsson náð 37 dýrum við lækinn bara í vetur! Ekkert hafa veiðimenn séð til minks svo vitað sé til ennþá í vor og lofar það góðu með framhaldið.
Með þessum aðgerðum ætti framtíð þessa einstaka "ísaldarurriða" að verða tryggð í Minnivallalæk og bíð ég spenntur eftir því að alvöru "15 pundarar" veiðist fljótlega á svæðinu!
 |
 |
| Veiðimaður í veiði við Arnarhólsflúð nýverið. |
|