Þrátt fyrir óhentuga tíð er ekki annað hægt að segja en vel gangi á rjúpnasvæðum okkar. Á svæðum í Breiðdal og nágrenni frá Veiðihúsinu Eyjar fengust 109 stk. í hollinu 8-11 nóvember eða að jafnaði nálægt 10 rjúpur á mann sem bjargaði þar með jólamáltíðinni hjá þeim. Flestir veiddu í einungis 2-3 daga af þeim fjórum sem leyft var að veiða þá. Eitthvað minna var veitt þessa helgina núna 16-18 nóvember en norðanáhlaup gerði mönnum einnig erfitt fyrir þá.
Gott gengi er á svæðum okkar í Jökulsárhlíð, Jökuldal og Jökuldalsheiði en þar fengu þrír menn núna yfir 40 rjúpur. Mikil ánægja með svæðin þar og mjög sérstakt að rétt við Veiðihúsið Hálsakot þar sem veiðimenn gista virðist vera mikið af rjúpu í kjarrivöxnu svæði bakvið húsið! Þarf því oft ekki að hafa mikið fyrir því að ná þeim fyrstu á morgnanna!
|