Jólakveðja frá Strengjum

22.nóvember 2007

Bókanir fyrir sumarið 2008 eru hafnar á fullum krafti þótt að ekki hafi tekist vegna anna að klára að uppfæra upplýsingarnar á vefnum, en því verður lokið á milli jóla og nýárs.

Flest holl í Hrútu og Breiðdalsá vilja halda sínum dögum frá síðasta sumri, en þó er líklegt að eitthvað losni og áhugasamir ættu að hafa samband og setja sig á biðlista. Meiri sveigjanleiki er ennþá á lausum stöngum í Minnivallalæk, Laxá í Nesjum, Jöklu og Fögruhlíðará svo þar ættu veiðimenn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þó er eftirspurnin töluverð á þessi svæði og æskilegt að hafa samband fyrr en seinna til að finna hentuga daga.

Almennt var rjúpnaveiði á svæðum Strengja góð miðað við veiði víða annarsstaðar á landinu. Talið er að á milli 400-500 fuglar hafi fengist þrátt fyrir óhentug skilyrði megnið af veiðitímanum. Virðist ástand rjúpnastofnsins líka vera einna best á austurlandi og sást oft töluvert af fugli en var hann mjög styggur.

Jólakveðja

 

Vil minna á að okkar glæsilegu veiðihús við Minnivallalæk, Breiðdalsá og Jöklu eru leigð út yfir vetrarmánuðina, tilvalin til vinafunda og einnig fyrir fyrirtæki til funda og annarra uppákoma enda öll nauðsynleg aðstaða fyrir hendi.

Okkar bestu óskir um gleðileg jól og heillaríkt komandi ár.
Með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is