Laxinn er mættur í Hrútafjarðará

24.júní 2007

Er kíkt var eftir laxi í gær í Hrútafjarðará sáust allavega 3 laxar í Brúarhylnum í Síká. Voru það frekar vænir laxar, sá stærsti áætlaður um 12-14 pund. Á myndinni sést Júlíus Guðmundsson leiðsögumaður horfa í hylinn í gærkvöldi þar sem þeir lágu.

Rólegt hefur verið yfir bleikjunni í Breiðdalsá, en aðeins betra í Fögruhlíðará. Þar lenti um síðustu helgi holl í góðri veiði með hátt í 60 bleikjur af öllum stærðum, frá smælki og upp í 4 pund.

Einn lax sást í gær í Tinnudalsá í Breiðdalsá, en bæði Hrúta og Breiðdalsá opna 1. júlí næstkomandi. Vonandi gengur þá betur en almennt hefur verið við opnun laxveiðiáa til þessa á landinu í ár, enda veiði með rólegra móti víðast þar sem hún er hafin.
Hrútafjarðará
 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is