Laxveiðin tekur kipp í Breiðdalsá

25.júlí 2007

Þrátt fyrir eindæma þurrkatíð og erfiðar aðstæður hefur veiðin tekið kipp í Breiðdalsá. Í gær komu t.d. 13 laxar á land, flestir 8-11 pund og laxar að ganga á hverju flóði.   
Tæplega 60 laxar hafa nú veiðst í ánni og hafa algjör umskipti orðið eftir treglega byrjun og lofar það góðu fyrir sumarið.

Breiðdalsá

Með 10 punda hrygnu af Skammadalsbreiðu, en hún hefur gefið vel undanfarna daga.  


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is


Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is