Mikið bókað fyrir sumarið

27. febrúar 2007

Óhætt er að segja að eftirspurnin hefur sjaldan eða aldrei verið meiri eftir veiðileyfum hjá okkur og fyrir komandi sumar, sérstaklega í laxveiðileyfin. Að vanda er Hrútafjarðará orðin löngu uppseld en nú fylgir Breiðdalsá fast á eftir og eru allar stangir farnar þar einnig og biðlistar ef eitthvað losnar um.

Þó er enn hægt að komast í lax hjá okkur í Laxá í Nesjum, en þessi á hefur verið að gefa á bilinu 92-208 laxa undanfarin ár sem er ekki slæmt fyrir tveggja stanga á. Stangardagurinn með veiðihúsi kostar á bilinu kr. 9.900 – 27.900. Það er óhætt að segja að það sé ekki mjög hátt verð í lax miðað við margar aðrar á.

Með stóraukinni laxagegnd í Breiðdalsá er silungasvæðið þar einnig nú með ágæta laxavon og vitað var um staði þar eins og Eyjanes og Lambabakkahyl sem virtust halda laxi mest allt sumarið 2006.  Ekki var þó mikið reynt að veiða þar í júlí-september og er ég sannfærður um að ófáir laxar hefðu veiðst þar ef þessir staðir hefðu verið stundaðir reglulega eins og á laxasvæðinu aðeins ofar í ánni. Verðið á silungasvæðinu er áfram stillt í hóf eða kr. 7.000 stöng á dag og ekki slæmt að eiga von á laxi í þessum verðflokki ennþá, fyrir utan alla sjóbleikjuna og urriðann á svæðinu! Flestar helgar eru bókaðar í maí og júní og margir dagar í fyrrihluta júlí, en töluvert laust eftir það.

Minnivallalækur

Það getur verið kalt á vorin í Minnivallalæk en þeir stóru eru oft í tökustuði þá!

Breiðdalsá

Hluti gönguseiðanna sem sleppt er í Breiðdalsá hvert vor er settur í sleppitjarnir strax yfir veturinn, en í miklum kuldum þarf "Súddi"
staðarleiðsögumaður og seiðapabbi að fóðra seiðin í gegnum vakir á ísnum eins og sést hér!Þessi langa aðlögun seiðanna í sleppitjörnum herðir seiðin og eykur heimtur þeirra.

Minnivallalækur bókast hratt og mikið farið frá apríl til loka júlí, en þó örfá holl ennþá laus á þessu tímabili, en væntanlega verður það þó fullbókað að venju, því er um að gera að panta fljótlega. Ennþá töluvert laust í ágúst og september.  

Fögruhlíðará og Kaldá hafa fengið frábærar móttökur á markaðinum, og ágúst og september er að mestu fullbókaðir þegar laxveiðivonin er hvað mest. En sjóbleikjuveiðin í júní og júlí í Fögruhlíðarós getur verið frábær og töluvert er laust þá ennþá.

Væntanlega verður hægt að komast í Jöklu með stuttum fyrirvara í sumar, enda “rennt blint í sjóinn” þar til að byrja með og veiðileyfin á hóflegu verði eða kr. 2.000 stöng á dag. Þó eru nokkrar helgar vel bókaðar um haustið strax svo líklega er betra að hafa einhvern fyrirvara með bókun þá.

Nánari upplýsingar um laus leyfi má finna á vef okkar www.strengir.is


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is